Habilis hefur góða þekkingu og reynslu af smíða smáforrita (e. apps) fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Notuð er tækni sem gerir það kleift að samnýta meirihluta kóðans fyrir flestar gerðir farsíma sem leiðir af sér hagræði og sparnað fyrir viðskiptavini. Þetta er mikilvægt í dag þegar nú þegar eru í boði tvö stór stýrikerfi á þessum markaði, iOS og Android.
Fyrirtæki sem þjóna viðskiptavinum sínum með góðum lausnum í snjallsímum og spjaldtölvum hafa uppskorið vel. Viðskiptavinir tengjast fyrirtækinu betur í gegnum það tæki sem þeir hafa næst sér allan sólarhringinn, allt árið um kring. Þetta er góð og ódýr leið til þess annars vegar að miðla upplýsingum til viðskiptavina og hins vegar að gera honum kleift að sjá sjálfur um sín mál hjá fyrirtækinu. Það leiðir svo af sér sparnað og hagræðingu.