Habilis hefur sérhæft sig í að setja upp og starfrækja þjónustugátt viðskiptavina (Customer Service Portal) með sérstaka áherslu á skipafélög. Slík þjónustugátt veitir fyrirtækjum skjótvirka og árangursríka leið til að samþætta samskipti við viðskiptavini sína, bæði innan og utan fyrirtækisins. Með því að setja upp slíka þjónustugátt geta viðskiptavinir fylgst með nýjum pöntunum, hreyfingum og breytingum á þeim og haft aðgang að sögu þeirra. Um leið getur viðskiptavinurinn haft aðgang að skjótvirkri þjónustu allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Það hækkar þjónustustigið um leið og dregið er úr kostnaði.
Þjónustugátt fyrir hverja?
Flest fyrirtæki hafa yfir að ráða upplýsingakerfum sem hafa þróast yfir langan tíma með þeirra eigin þarfir í huga. Allt þar til núna hefur verið tímafrekt og kostnaðarsamt að skipta þeim út fyrir ný vegna nýrra krafna. Þjónustugátt viðskiptavina (CSP) er byltingarkennd leið til að draga verulega úr kostnaði við slíkar breytingar. Þjónustugáttin er í senn sveigjanleg og stillanleg og býður upp á persónulega og gagnvirka þjónustu á vefnum. Lausnin veitir alþjóðlegum jafnt sem innlendum stórfyrirtækjum tækifæri til að samþætta kerfi sín og gera þau aðgengileg um allan heim. CSP veitir almennt aðgengi að kerfunum, hvort sem um er að ræða fjármál, flutninga, gáma, vörustjórnun eða annað það er tengist daglegri stjórnun. Um leið er þessi lausn mun hagkvæmari en að taka upp ný upplýsingakerfi. Viðskiptavinir þurfa oft að sækja upplýsingar frá fleiri en einum stað innan fyrirtækis sem geta legið í mörgum aðskildum ólíkum kerfum. Samþætt lausn, sem byggir á CSP, veitir skilvirkt og samræmt notendaviðmót í stað mismunandi viðmóta að hverju og einu kerfi.
Hvers vegna CSP?
Vegna þess að það býður viðskiptavinum betri þjónustu og aukið sjálfstæði þegar kemur að aðgangi að upplýsingakerfum. Þannig fá þeir forskot í samkeppni um leið og fjármunir sparast í rekstri.
Helstu kostir:
- Aðgangur 24/7
- Einn aðgangsstaður
- Frábær þjónusta
- Aukin ánægja viðskiptavina
- Færri þjónustufulltrúar
- Aukin sjálfvirkni í innskráningu
- Færri bókunarvillur
- Dregur úr kostnaði
- Dregur úr fjárfestingaþörf vegna grunnkerfa
- Lágmarkar fjárfestingu í nýjum vél- og hugbúnaði