Habilis og Samskip hófu samstarf árið 2002 um Concorde netgátt sem tengdi saman upplýsingakerfi fyrirtækisins í viðskiptanetgátt og er í raun forveri Customer Service Portal (CSP), þjónustugáttar viðskiptavina. Markmiðið var að gera viðskiptavininum kleift að nálgast upplýsingar úr öllum viðskiptakerfum fyrirtækisins. Árið 2005 tóku Samskip ákvörðun um að uppfæra viðskiptakerfi fyrirtækisins og í samstarfi við Habilis var ákveðið að útbúa þjónustugátt sem sameinaði öll viðskiptakerfi fyrirtækisins í veflausn fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Vefurinn var settur í loftið árið 2007 og hefur verið í gangi síðan með 100% uppitíma. Fljótlega eftir að vefurinn fór í gang varð ljóst að hann mæltist gríðarlega vel fyrir og hefur hann notið mikilla vinsælda á meðal viðskiptavina fyrirtækisins. Áframhaldandi samstarf Habilis og Samskipa leiðir stöðugt af sér nýjungar sem koma viðskiptavinum fyrirtækisins til góða. Samskip eru þannig brautryðjandi á þessu sviði hérlendis.
"Við höfum verið afar ánægðir með CSP kerfið sem Habilis hefur hannað fyrir okkur," segir Ragnar Þór Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Samskipum. "Við náðum sannarlega samkeppnisforskoti og CSP hefur fært okkur fleiri fyrirtæki í viðskipti. Fjölda viðskiptafulltrúa hefur dregist saman en á sama tíma er ánægja viðskiptavina að aukast. Það er óumdeilanlegt að CSP er næsta stig samskipta við viðskiptavini."