Frá árinu 2002 hefur Habilis starfað með Landsvirkjun í innleiðingu upplýsingatæknikerfa, annars vegar sem þróunaraðili hugbúnaðar og hins vegar sem ráðgjafi í samskiptum Landsvirkjunar við önnur hugbúnaðarhús. Customer Service Portal (CSP) var innleitt árið 2003 hjá Landsvirkjun til að auðvelda innri samskipti á milli deilda fyrirtækisins, s.s. virkjanir, auk verktaka.
Aldrei hefur verið lát á samstarfi fyrirtækjanna og um þessar mundir sinnir Habilis margvíslegum verkefnum fyrir Landsvirkjun í ráðgjöf og beinni hugbúnaðarþróun.