Eimskip og Habilis hófu samstarf í desember árið 2009 með það að markmiði að uppfæra þjónustuvef fyrirtækisins. Þar var horft til þess hagræðis sem viðskiptavinir banka hafa af notkun heimabanka og ákveðið að bjóða viðskiptavinum Eimskipa sams konar þjónustu. Þess vegna hentaði CSP afar vel fyrir Eimskip. Verkefnið gekk einstaklega vel og var fyrsti áfangi kláraður í júní 2010 og vefurinn settur í prófanir hjá völdum viðskiptavinum fljótlega eftir það. Endanleg útgáfa var gangsett í desember 2010. Almenn ánægja er með þetta verkefni á meðal starfsfólks Eimskipa og hafa viðtökur viðskiptavina að sama skapi verið góðar.